Samkvæmt íslenskum lögum er söluaðilum skylt að staðfesta aldur kaupanda við sölu á áfengi, tóbaki og öðrum aldurstakmörkuðum vörum og þjónustu. Brot geta leitt til sekta og jafnvel sviptingar starfsleyfis.
Hefðbundin aldursstaðfesting með skilríkjum er hæg, óþægileg og sýnir starfsfólki persónuupplýsingar sem þau ættu ekki að þurfa. Ábyrg verslun leysir þetta með stafrænu vottunarkerfi sem staðfestir aldur án þess að birta nafn, kennitölu eða fæðingardag — tryggir vernd fyrir fyrirtækið og friðhelgi fyrir viðskiptavininn.
Markaðurinn þarf á þriðja aðila að halda sem bæði einstaklingar og fyrirtæki treysta til að vernda persónuupplýsingar. Á sama tíma þarf að tryggja að ferlið við aldursvottun sé staðlað milli aðila til að koma í veg fyrir svik/misferli og óskýra túlkun aðila við sannvottun.
Skráðu og stjórnaðu öllum verslunarstöðum þínum. Skrá heimilisföng, opnunartíma og tengja tæki við hverja verslun.
Tækin sannvotta fyrir þig og miklvægt að stýra þeim vandlega. Búðu til API lykla og fylgstu með sannvotunum niður á tæki.
Stofnaðu starfmenn, úthlutaðu heimildum og fylgstu með aldursstaðfestingum sem hver starfsmaður framkvæmir.
Fáðu dulkóðaða sönnun fyrir hverja aldursstaðfestingu. Allar færslur eru skráðar fyrir eftirlitsaðila án þess að brjóta á friðhelgi viðskiptavinar og eftirlitsaðilar treysta okkur.
Tengist beint við ERP kerfið þitt með RESTful API eða notaðu opinbera iOS og Android öppin okkar.
Starfsmenn staðfesta með sínu starfsmannanúmeri eða nota fjarstýrða hnappinn til að samþykkja sölu þegar þeir hafa gengið úr skugga um aldur.
Árgjald fyrir hvert fyrirtæki er 67.000 kr veitir þér inngöngu í Ábyrga verslun samtökin og aðgang að kerfinu.
Tengist beint við ERP/POS kerfi þitt. Starfsfólk skannar með NFC/QR, notar rafræna auðkenningu eða handvottar aldur viðskiptavinar.
Tengdu iOS/Android tæki við reikninginn þinn. Starfsfólk notar appið til að skanna og staðfesta aldur beint.
Fullbúin spjaldtölvulausn á gólfstandi með fjarstýringu og ljósi sem segir til um aldur. Við mætum og setjum upp fyrir þig.
Við vinnum með leiðandi fyrirtækum við að útfæra samþættingu við kassakerfi sem flýir fyrir afgreiðslu.
Onnio hefur þróað Business Central viðbót sem tengist beint við Ábyrg verslun API. Sérhæfð lausn sem gerir uppsetningu fljótlega og einfalda.
Notar þú annað kassakerfi?
Við erum alltaf að bæta við stuðningi fyrir fleiri kerfi. Skoðaðu API skjölun okkar til að sjá hvernig þú getur tengst beint.